Í tengslum við aðalfund sinn býður BÍL – Bandalag íslenskra listamanna, til málþings í Iðnó laugardaginn 9. febrúar undir yfirskriftinni

Skapandi atvinnugreinar af sjónarhóli listamanna.

Málþingið er byggt á sex fyrirlestrum, sem fluttir verða af félögum í aðildarfélögum BÍL. Þau eru: Borghildur Sölvey Sturludóttir arkitekt, Bragi Valdimar Skúlason tónlistarmaður og textasmiður, Guðmundur Oddur Magnússon hönnuður og prófessor, Ósk Vilhjálmsdóttir myndlistarmaður og leiðsögumaður, Sólveig Arnarsdóttir leikari og Þorvaldur Þorsteinsson myndlistarmaður og rithöfundur.

Talsvert er nú rætt um skapandi atvinnugreinar og stöðu þeirra, m.a. í tengslum við útgáfu mennta- og menningarmálaráðuneytis á skýrslu starfshóps um skapandi greinar:

„Skapandi greinar – Sýn til framtíðar“

Hugmyndin með málþinginu er að skoða hvaða augum listamenn og hönnuðir sjá uppbyggingu skapandi atvinnugreina í náinni framtíð. Frummælendurnir nálgast viðfangsefnið hver með sínum hætti, út frá eigin reynslu af störfum í hinum skapandi geira og líklegt er að sýn þeirra geti haft áhrif á umræðuna um uppbyggingu greinanna. Málþingið ætti því að vekja forvitni út fyrir raðir aðildafélaga BÍL, t.d. fjölmðila, aðila vinnumarkaðarins, stjórnmálamanna og þeirra sem sinna opinberri stjórnsýslu.

Fyrirkomulag málþingsins verður þannig að fyrirlestrarnir verða kvikmyndaðir og settir á vefinn að málþinginu loknu, með það að markmiði að umræðan geti haldið áfram á vefmiðlum og samskiptasíðum. Þannig má spinna þráðinn áfram og nota rök listamanna og hönnuða þegar umræðunni vindur fram t.d. í tengslum við komandi þingkosningar.

Málþingið hefst kl. 13:30 og stendur til kl. 15:30. Því lýkur með léttum veitingum og óformlegu spjalli um efni málþingsins. Málþingið er öllum opið.