Saga BÍL
Bandalag Íslenskra listamanna var stofnað á Hótel Heklu 6. september 1928.
Bandalagið var hugsað sem bæði menningarpólitískt afl og hagsmunasamtök listamanna. Tilgangurinn með stofnun BÍL var að sameina listamamenn landsins í eitt stórt og öflugt félag sem ynni að sameiginlegum hagsmunamálum íslenskra listamanna á breiðum grundvelli. Markmið starfseminnar er að styðja vöxt og viðgang íslenskra lista, bæði innan lands og utan, gæta hagsmuna íslenskra listamanna og efla með þeim samstöðu og samvinnu. Aðalhvatamaður að stofnun bandalagsins var Jón Leifs, tónskáld, en honum og fleiri listamönnum þess tíma, sem höfðu menntað sig og starfað erlendis, fannst tímabært að hleypa nýjum straumum inn í íslenskt samfélag og rjúfa menningarlega einangrun þess. Þeim fannst óviðeigandi það ástand sem íslenskir listamann bjuggu við, þar sem þeir voru í raun réttlausir ölmusumenn og helst álitnir byrði á samfélaginu.
Fyrsta stjórnin:
Gunnar Gunnarsson formaður
Jón Leifs ritari
Guðmundur Einarsson gjaldkeri
Varamenn í stjórn:
Guðmundur Hagalín
Páll Ísólfsson
Finnur Jónsson
Stofnfélagar:
Annie Leifs
Ásgrímur Jónsson
Ásmundur Sveinsson
Björgvin Guðmundsson
Brynjólfur Þórðarson
Davíð Stefánsson
Dóra Sigurðsson
Eggert Laxdal
Eggert Stefánsson
Einar Benediktsson
Emil Thoroddsen
Emil Valters
Finnur Jónsson
Friðrik Ásmundsson Brekkan
Guðmundur Einarsson
Guðmundur Friðjónsson
Guðmundur G. Hagalaín
Guðmundur Kamban
Gunnar Gunnarsson
Gunnlaugur Blöndal
Halldór Kiljan Laxness
Haraldur Sigurjónsson
Indriði Einarsson
Jakob Thorarensen
Jóhann Jónsson
Jóhannes Kjarval
Jón Jónsson
Jón Leifs
Jón Stefánsson
Jón Sveinsson
Jón Þorleifsson
Júlíana Sveinsdóttir
Kristín Jónsdóttir
Kristín Sigfúsdóttir
Kristján Albertsson
Kristmann Guðmundsson
Nína Sæmundsson
Páll ísólfsson
Pétur Jónsson
Ríkarður Jónsson
Sigfús Einarsson
Stefán frá Hvítadal
Þórbergur Þórðarson
Þórarinn Jónsson
Forsetar Bandalags íslenskra listamanna
2024 – Jóna Hlíf Halldórsdóttir, myndlistarmaður
2018 – 2024 Erling Jóhannesson, leikari
2010 – 2018 Kolbrún Halldórsdóttir, leikstjóri
2006 – 2010 Ágúst Guðmundsson, leikstjóri
2004 – 2006 Þorvaldur Þorsteinsson, rithöfundur og myndlistarmaður
1998 – 2004 Tinna Gunnlaugsdóttir, leikari
1991 – 1998 Hjálmar H. Ragnarsson, tónskáld
1989 – 1991 Brynja Benediktsdóttir, leikari og leikstjóri
1987 – 1989 Arnór Benónýsson, leikari og leikstjóri
1985 – 1987 Birgir Sigurðsson, rithöfundur
1981 – 1985 Þorkell Sigurbjörnsson, tónskáld
1975 – 1981 Thor Vilhjálmsson, rithöfundur
1966 – 1975 Hannes Davíðsson, arkitekt
1964 – 1966 Jón Þórarinsson, tónskáld
1962 – 1964 Brynjólfur Jóhannesson, leikari
1960 – 1962 Svavar Guðnason, listmálari
1957 – 1959 Snorri Hjartarson, skáld
1957 Valur Gíslason, leikari
1955 – 1957 Jón Leifs, tónskáld
1953 – 1955 Tómas Guðmundsson, skáld
1951 – 1952 Jón Þórarinsson, tónskáld
1949 – 1950 Tómas Guðmundsson, skáld
1946 – 1948 Lárus Pálsson, leikari og leikstjóri
1944 – 1946 Guðmundur Einarsson, myndlistarmaður
1941 – 1943 Jóhann Briem, listmálari
1936 – 1941 Jón Leifs, tónskáld
1931 – 1935 Páll Ísólfsson, tónskáld