Bandalag íslenskra listamanna (BÍL) er heildarsamtök fagfélaga listamanna og var stofnað 6. september 1928. Tilgangur bandalagsins er fyrst og fremst að styðja vöxt og viðgang íslenskra lista, bæði innanlands og utan, gæta hagsmuna íslenskra listamanna og efla með þeim samvinnu og samstöðu. Í dag eiga 15 fagfélög listamanna úr öllum listgreinum aðild að bandalaginu.
Eins og fram kemur í lögum BÍL er hlutverk þess að standa vörð um hagsmuni bæði listamanna og listarinnar. Starf bandalagsins felst meðal annars í að móta og hafa áhrif á menningarpólitíska orðræðu, bæði innan stjórnsýslu og í beinni réttindabaráttu listafólks. Menningarpólitísk orðræða er síbreytileg og mótast af gildum samfélagsins hverju sinni.
Í því samhengi býr BÍL yfir bæði dagskrárvaldi og ríkum félagsauði (e. social capital).
Félagsauður vísar að þeim tengslum, trausti og aðgangi að tengslanetum sem veita einstaklingum og hópum aukin tækifæri, sýnileika og áhrif. Hann getur falist í aðgangi að upplýsingum, ráðgjöf, faglegum vettvangi og þátttöku í ákvörðunarferlum. Félagsauður tengist valdi, þar sem aðgangur að tengslanetum og stofnunum hefur áhrif á hverjir fá tækifæri til þátttöku og hverjir standa utan þeirra.
BÍL er meðvitað um hlutverk sitt sem þátttakandi og hliðvörður innan þessa kerfis og þá ábyrgð sem því fylgir. Bandalagið lítur á jaðarsetningu sem afleiðingu félagslegra, menningarlegra og pólitískra kerfa sem skapa hindranir, en ekki sem eiginleika einstaklinga. Hlutverk BÍL er að greina þessar kerfislægu hindranir og vinna markvisst að breytingum sem auka aðgengi að félagsauði, stuðla að aukinni þátttöku og efla jafnræði innan listalífsins.
Aðgengi og inngilding eru grundvallarforsendur réttláts og lýðræðislegs listalífs. BÍL lítur á inngildingu sem lýðræðislegt réttlætismál og menningarpólitíska skyldu enda getur listalíf sem endurspeglar ekki fjölbreytileika samfélagsins ekki talist fullburða lýðræðislegt rými.
Samfélag listamanna hefur í sögulegu samhengi staðið vörð um mannréttindi og málfrelsi. Í því felst ábyrgð á að greina og ryðja úr vegi hindrunum innan eigin vettvangs og tryggja raunverulegt aðgengi og þátttöku fjölbreyttra hópa í íslensku listalífi.
Markmið stefnunnar er að auka aðgengi fjölbreyttra hópa að félagsauði og táknrænu auðmagni innan listalífsins og tryggja að fleiri raddir hafi raunverulegan möguleika á þátttöku og áhrifum.
Haustið 2023 skipaði forseti BÍL starfshóp til að móta inngildingarstefnu bandalagsins. Í hópnum sátu Eva Berger, formaður Félags leikmynda- og búningahönnuða, Lilja Björk Haraldsdóttir, formaður Félags íslenskra listdansara, og Erling Jóhannesson, þáverandi forseti BÍL. Starfshópurinn átti samráð við fjölbreyttan hóp ráðgjafa og hagaðila, þar á meðal Margréti Norðdahl framkvæmdastjóra Listvinnzlunnar, Yndu Eldborg frá Samtökunum ’78 og Hugo Llanes frá AIVAG – samtök listafólks af erlendum uppruna.
Stefnan var svo yfirfarin og uppfærð vorið 2026 af Lilju Björk Haraldsdóttur ásamt aðkomu Margrétar Norðdahl hjá Listvinnzlunni.
Með þessari stefnu skuldbindur BÍL sig til að vinna markvisst að auknu aðgengi, jafnræði og inngildingu innan íslensks listalífs.
Grunnhugtök sem móta áherslu stefnunnar
Inngilding
Að viðurkenna og virða fjölbreytileika samfélagsins og tryggja jafnt aðgengi, sýnileika og raunverulega þátttöku allra. Inngilding felur í sér að skapa aðstæður þar sem fjölbreyttar raddir hafa áhrif og tilheyra listalífinu á jafnræðisgrundvelli.
Aðgengi
Aðgengi vísar til þeirra skilyrða sem gera fólki kleift að taka þátt í listalífi og njóta þeirra réttinda og tækifæra sem þar felast.
- Hlutlægt aðgengi snýr að áþreifanlegum þáttum, svo sem líkamlegu aðgengi, aðgengi að upplýsingum, styrkjum, menntun, verklagsreglum og faglegum tækifærum.
- Huglægt aðgengi snýr að upplifun og félagslegum þáttum, svo sem hvort einstaklingar upplifi sig velkomna, sjái sig endurspeglaða og hafi raunverulegan aðgang að tengslanetum og félagsauði.
Jafnt aðgengi felur í sér að bæði hlutlægar og huglægar hindranir séu viðurkenndar og fjarlægðar.
Þessi lykilhugtök snúa annars vegar að innra starfi BÍL og hins vegar að því hlutverki og þeim áhrifum sem bandalagið hefur út á við. BÍL hefur áhrif á menningarumræðu, tekur þátt í skipun fulltrúa í nefndir og ráð og sinnir faglegri ráðgjöf til ríkis og sveitarfélaga.
Innra starf BÍL byggir á tilnefningum aðildarfélaga og hefur bandalagið því ekki beina aðkomu að vali fulltrúa þeirra, en getur hvatt aðildarfélög sín, bæði í orði kveðnu og með góðu fordæmi, til aukins fjölbreytileika þess hóps sem valinn er til ábyrgðarstarfa aðildarfélaga sinna svo það endurspegli með raunsærri hætti mynd þess samfélags sem við lifum og störfum í.
Að ganga á undan með góðu fordæmi felur í sér að setja skýra stefnu og móta verklag við þær skipanir í nefndir, ráð og faghópa sem BÍL kemur að. Með því getur bandalagið stuðlað að auknu jafnræði og fjölbreytileika í ákvarðanatöku.
BÍL mun hafa þessi hugtök að leiðarljósi í allri stefnumótun, ákvarðanatöku og samstarfi við hagaðila.
Megináherslur stefnunnar
Eftirfarandi megináherslur marka stefnu BÍL um inngildingu og aðgengi og undirstrika ábyrgð bandalagsins sem hagsmunasamtaka listafólks og áhrifaaðila í mótun list- og menningarpólitíkur. Þær taka jafnt til innra starfs bandalagsins og þeirra áhrifa sem það hefur á þróun listalífsins í heild.
1: Fjölbreytileiki og jafnræði í tilnefningum
BÍL hefur það að markmiði að tilnefningar bandalagsins endurspegli fjölbreytileika íslensks listalífs og stuðli að jafnræði í ákvarðanatöku innan listageirans.
Í ljósi þess að BÍL skipar, samkvæmt samstarfssamningum við ríki og borg, fulltrúa í stjórnir úthlutunarnefnda og ýmis fagráð, ber bandalagið sérstaka ábyrgð á að:
-
- tryggja að breidd þess hóps sem tilnefndur er endurspegli fjölbreytileika íslensks listalífs,
- gæta jafnræðis milli listgreina og kynja,
- leggja sérstaka áherslu á þátttöku listafólks sem mætir kerfisbundnum hindrunum, svo sem listafólks af erlendum uppruna, kynsegin listafólks og fatlaðs listafólks.
Til að styðja við þetta markmið mun BÍL:
- birta árlega samantekt um tilnefningar sínar, þar á meðal sundurliðun eftir kyni, aldri og listgrein og, þar sem við á og með samþykki, uppruna og fötlun,
- tryggja að aðgengi og inngilding séu fastur hluti af samtali bandalagsins við aðildarfélög, stjórnvöld og aðra hagaðila innan listalífsins,
- setja leiðbeinandi viðmið fyrir aðildarfélög sín um fjölbreytileika við skipan stjórna, ráða og annarra ábyrgðarhlutverka,
- krefjast skriflegs rökstuðnings ef vikið er frá settum viðmiðum um fjölbreytileika,
- endurskoða reglulega verklag og viðmið til að tryggja stöðugar framfarir í átt að auknu jafnræði og inngildingu.
2: Starfshættir og gagnsæi
BÍL hefur það að markmiði að starfshættir bandalagsins endurspegli meginreglur inngildingar, jafnræðis og gagnsæis.
BÍL mun:
-
- tryggja að verklag, ákvarðanataka og samskipti bandalagsins séu gagnsæ og aðgengileg,
- stuðla að því að upplýsingar um hlutverk, tækifæri og þátttöku innan bandalagsins séu aðgengilegar öllum,
- vinna markvisst að því að fjarlægja bæði hlutlægar og huglægar hindranir sem geta takmarkað þátttöku,
- efla þekkingu og meðvitund innan bandalagsins um inngildingu, fjölbreytileika og kerfisbundnar hindranir,
- tryggja að aðgengi og inngilding séu höfð að leiðarljósi í allri stefnumótun og starfsemi bandalagsins.
3: BÍL í menningarpólitísku samhengi
BÍL hefur það að markmiði að beita áhrifum sínum til að stuðla að aukinni inngildingu, jafnræði og fjölbreytileika í íslensku listalífi og menningarpólitík.
BÍL mun:
-
- beita sér fyrir því að inngilding og jafnt aðgengi séu höfð að leiðarljósi í menningarstefnu og opinberri stefnumótun,
- vinna með stjórnvöldum, menningarstofnunum og aðildarfélögum að því að draga úr kerfisbundnum hindrunum,
- stuðla að auknu aðgengi listafólks að félagsauði, tengslanetum og ákvarðanatöku,
- nýta stöðu sína sem hagsmunasamtök til að efla umræðu og vitund um inngildingu innan listalífsins,
- ganga á undan með góðu fordæmi í eigin starfsháttum og samstarfi.
Með þessum megináherslum staðfestir BÍL skuldbindingu sína til að stuðla að réttlátara og inngildandi listalífi. Bandalagið mun beita stöðu sinni, félagsauði og áhrifum til að ryðja úr vegi hindrunum, auka aðgengi að áhrifum og tryggja að íslenskt listalíf endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.
Aðgerðaráætlun
Til að framfylgja megináherslum stefnunnar mun BÍL innleiða aðgerðir sem stuðla að auknu aðgengi, inngildingu og jafnræði í starfsemi bandalagsins og innan listalífsins í heild. Til að tryggja raunverulega framvindu setur BÍl fram 3 ára aðgerðaáætlun sem byggir á eftirfarandi aðgerðum:
Aðgerð 1:
BÍL mun þróa og birta mælikvarða sem endurspegla aðgengi, þar á meðal:
- Hlutfall fjölbreyttra fulltrúa í nefndum, ráðum og stjórnum sem BÍL skipar í.
- Sundurliðun tilnefninga eftir listgrein, kyni og aldri og, þar sem við á og með samþykki, uppruna og fötlun.
Niðurstöður verða birtar árlega sem hluti af ársskýrslu BÍL.
Aðgerð 2:
BÍL mun setja á fót ráðgjafahóp um inngildingu og aðgengi til þriggja ára í senn.
Hlutverk hópsins er að:
- veita faglega ráðgjöf um skipanir, stefnumótun og starfshætti,
- fylgjast með framvindu og leggja fram tillögur að úrbótum,
- stuðla að aukinni þátttöku listafólks sem mætir kerfisbundnum hindrunum.
Hópurinn starfar samkvæmt skýru umboði, hefur aðgengi að stjórn BÍL og skilar árlegri opinberri stöðuskýrslu. Greitt skal fyrir þátttöku í hópnum.
Aðgerð 3:
BÍL mun innleiða verklagsreglur sem tryggja að inngilding og aðgengi séu hluti af allri starfsemi bandalagsins.
Í því felst að:
- þróa viðmið og tékklista fyrir tilnefningar og ákvarðanatöku,
- efla fræðslu og meðvitund um kerfisbundnar hindranir, vald og margþætta mismunun,
- vinna með aðildarfélögum að því að efla inngildandi starfshætti.
Aðgerð 4:
BÍL mun beita sér fyrir auknu aðgengi að listmenntun, faglegum vettvangi og ákvarðanatöku innan listalífsins. Markmiðið er að stuðla að því að fleiri listamenn, óháð bakgrunni eða aðstæðum, hafi raunverulegan aðgang að faglegum tækifærum og áhrifastöðum.
Tímalína 2026 – 2029
2026 – 2027
Innleiðing og grunnur að verklagi
Ábyrgð: Stjórn BÍL
- Setja á fót ráðgjafahóp um inngildingu og aðgengi.
- Þróa mælikvarða.
- Innleiða verklagsreglur og tékklista fyrir tilnefningar.
- Skilgreina ábyrgð og hlutverk innan BÍL.
Árangursviðmið:
Verklagsrammi og ráðgjafahópur kominn í fulla virkni.
2027 – 2028
Innleiðing í daglegt starf og ákvarðanatöku
Ábyrgð: Stjórn BÍL og ráðgjafahópur
- Birta fyrstu árlegu stöðuskýrslu með mælikvörðum.
- Samþætta inngildingu í allar tilnefningar og ákvarðanir.
- Ráðgjafahópur situr reglulega fundi bandalagsins.
- Efla fræðslu og vitund innan BÍL.
Árangursviðmið:
Mælikvarðar virkir og sýnilegar framfarir í fjölbreytileika tilnefninga.
2028 – 2029
Mat og áframhaldandi þróun
Ábyrgð: Stjórn BÍL og ráðgjafahópur
- Meta árangur og áhrif aðgerðaráætlunar.
- Uppfæra verklag og viðmið eftir þörfum.
- Birta opinbera stöðuskýrslu með mati á framvindu.
- Undirbúa næsta þriggja ára tímabil.
Árangursviðmið:
Kerfisbundin innleiðing inngildingar í starfsemi BÍL og skýr framvinda í auknu jafnræði.
BÍL ber ábyrgð á framkvæmd aðgerðaráætlunarinnar og mun birta árlega opinbera stöðuskýrslu um framvindu hennar. Stefnan og aðgerðaráætlunin verða endurskoðaðar að þremur árum liðnum með það að markmiði að tryggja áframhaldandi þróun í átt að réttlátara og inngildandi listalífi.
