Aðalfundur BÍL verður haldinn sunnudaginn 22. mars 2026 kl. 15:00–17:00 í Hannesarholti.

Fundarboð með dagskrá verður sent og birt á heimasíðu BÍL tveimur vikum fyrir fundinn.

Samkvæmt lögum BÍL skal boða til aðalfundar með a.m.k. eins mánaðar fyrirvara og skal dagskrá send út eigi síðar en tveimur vikum fyrir boðaðan aðalfund.

Aðalfundur BÍL fer fram skv. lögum Bandalagsins, sem eru aðgengileg á heimasíðunni. Minnt er á að auk stjórnarmanns getur hvert aðildarfélag tilnefnt fjóra fulltrúa til setu á aðalfundinum með atkvæðisrétt, þannig að hvert aðildarfélag fer með fimm atkvæði. Sambandsfélag getur að auki tilnefnt einn fulltrúa fyrir hvert sjálfstætt starfandi félag innan sambandsins. Þess er óskað að tilkynningar um fulltrúa með atkvæðisrétt séu sendar forseta a.m.k. viku fyrir fundinn. Til áréttingar þá eiga allir félagsmenn aðildarfélaganna rétt til setu á fundinum með málfrelsi og tillögurétt, því er hvatt til þess að almennum félögum sé kynnt dagsetning og dagskrá fundarins með góðum fyrirvara og hann auglýstur á heimasíðum aðildarfélaganna.