Aðalfundur BÍL 2026
Fundarboð með dagskrá

 

Þann 13. febrúar var aðildarfélögum BÍL sent boð um aðalfund BÍL 2026.
Fundurinn verður haldinn sunnudaginn 22. mars í Hannesarholti klukkan 15:00 – 17:00.

Dagskrá aðalfundar:

  1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
  2. Lögmæti fundarins kannað og staðfest
  3. Fundargerð síðasta aðalfundar
  4. Skýrsla forseta um starf BÍL árið 2025
  5. Starfsáæltun BÍL 2026 – 2028
  6. Ársreikningar 2025

Kaffihlé – Páll Baldvinsson segir stuttlega frá Söguriti BÍL, sem hann er með í vinnslu.

  1. Lagabreytingar
  2. Ályktanir
  3. Inntaka nýrra félaga
  4. Kosning forseta
    • Forseti er á seinn ári síns tímabils. Ekki hefur borist mótframboð, og forseti gefur kost á sér áfram.
  5. Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga
  6. Inngildingastefna BÍL kynnt og lögð fram til samþykktar
  7. Önnur mál

Stjórn BÍL leggur fyrir fundinn þrjár ályktanir um listamannalaun, keðjuábyrgð og íslenska kvikmyndagerð, auk inngildingarstefnu BÍL sem lögð verður fram til samþykktar.

Í lok fundar verður boðið upp á fyrirlestur með Ragnheiði Aradóttur, PCC vottaðum stjórnenda- og teymismarkþjálfa og ráðgjafa með MSc í mannauðsstjórnun og diplómu í jákvæðri sálfræði. Ragnheiður hefur áratuga reynslu úr viðskiptalífinu, víðtæka stjórnunarreynslu og hefur setið í fjölmörgum stjórnum og nefndum. Hún starfar við stjórnenda- og teymisþjálfun, ráðgjöf og fyrirlestra og hefur þjálfað þúsundir einstaklinga innan fyrirtækja hérlendis og erlendis.

Upplýsingar um fulltrúa og atkvæðisrétt:

Aðalfundur BÍL fer fram samkvæmt lögum Bandalagsins, sem eru aðgengileg á heimasíðunni. Minnt er á að hvert aðildarfélag getur auk stjórnarmanns tilnefnt allt að fjóra fulltrúa með atkvæðisrétt, þannig að hvert aðildarfélag hefur allt að fimm atkvæði. Sambandsfélag getur jafnframt tilnefnt einn fulltrúa fyrir hvert sjálfstætt starfandi félag innan sambandsins.

Til þess að auðvelda skipulag, er óskað að tilkynningar um fulltrúa með atkvæðisrétt séu sendar forseta að minnsta kosti viku fyrir fundinn.

Til áréttingar: Allir félagsmenn aðildarfélaganna eiga rétt á setu á fundinum með málfrelsi og tillögurétt. Hvatt er til þess að almennum félögum sé kynnt dagsetning og dagskrá fundarins með góðum fyrirvara og að fundurinn sé auglýstur á heimasíðum aðildarfélaganna.