Aðalfundur BÍL 2017, verður haldinn laugardaginn 11. febrúar í Iðnó og hefst hann kl. 13:00. Í samræmi við ákvörðun stjórnar BÍL verður á fundinum hafin vinna við framtíðarstefnumótun á grundvelli sóknaráætlunar í listum og skapandi greinum, sem samþykkt var á aðalfundi BÍL 2015.

Um aðalfund BÍL fer skv. lögum BÍL, sem eru aðgengileg á heimasíðu Bandalagsins. Minnt er á að auk stjórnarmanns getur hvert aðildarfélag tilnefnt fjóra fulltrúa til setu á aðalfundinum með atkvæðisrétt, þannig að hvert aðildarfélag fer með fimm atkvæði. Sambandsfélag getur að auki tilnefnt einn fulltrúa fyrir hvert sjálfstætt starfandi félag innan sambandsins. Samkvæmt lögum BÍL ber félögum að senda inn greinargerð um störf aðildarfélaganna og tilkynna um aðalfundarfulltrúa a.m.k. tveimur vikum fyrir boðaðan aðalfund. Þá er minnt á að allir félagsmenn aðildarfélaganna eiga rétt til setu á fundinum með málfrelsi og tillögurétt. Hvatt er til þess að almennum félögum verði kynnt dagsetning fundarins með góðum fyrirvara.

Dagskrá fundarins ásamt tillögu stjórnar að starfsáætlun 2017 verður send út a.m.k. tveimur vikum fyrir fundinn.