Á morgun verða kynntar fyrstu niðurstöður í stóru rannsóknarverkefni um kortlagningu skapandi greina, sem unnið hefur verið að síðan í sumar. Verkefnið er unnið að frumkvæði samstarfsvettvangs skapandi greina og hefur Bandalag íslenskra listamanna tekið virkan þátt á þeim vettvangi. Hér með er boðið til kynninga- og fréttamannafundar um verkefnið:

 

Atvinnuvegur stígur fram í dagsljósið

 

Boð á kynningar- og fréttamannafund:

• Hvenær: Miðvikudaginn 1. desember 2010 klukkan 11:00-12:00.

• Hvar: Bíó Paradís, Hverfisgötu 52 í Reykjavík.

• Hvað: Kynning á tölulegum niðurstöðum rannsóknar á hagrænum áhrifum skapandi greina.

 

Síðastliðið vor hófst vinna við rannsókn á hagrænum áhrifum skapandi greina á Íslandi á heildstæðan hátt. Rannsóknin er unnin að frumkvæði samráðsvettvangs skapandi greina og fjármögnuð af fimm ráðuneytum og Íslandsstofu. Rannsóknina unnu Colin Mercer, sérfræðingur, Tómas Young, rannsakandi og Dr. Margrét Sigrún Sigurðardóttir, forstöðumaður Rannsóknarmiðstöðvar skapandi greina og lektor við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands.

Á Norðurlöndunum og í Evrópu hefur sú þróun orðið að skapandi greinar teljast nú sjálfstæður atvinnuvegur og sýna rannsóknir að í honum er einna mestur og hraðastur vöxtur. Því er ljóst að heildstæð greining á þætti skapandi greina í hagkerfinu er mikilvæg fyrir stjórnvöld þegar kemur að stefnumótun og ákvarðanatöku varðandi atvinnuuppbyggingu og samkeppnishæfni.

Þann 1. desember verða tölulegar niðurstöður rannsóknarinnar kynntar og er óhætt að segja að þær munu koma mörgum á óvart. Í raun má segja að þær dragi fram í dagsljósið atvinnuveg sem fáir hafa áttað sig á að er einn af undirstöðuatvinnuvegum landsins.

 

Félagar aðildarfélaga BÍL eru boðnir velkomnir á þennan kynningarfund í Bíó Paradís.