Á aðalfundi Bandalags íslenskra listamanna, sem haldinn var 22. mars 2026, var eftirfarandi ályktun samþykkt:
Bandalag íslenskra listamanna skorar á stjórnvöld að bregðast nú þegar við þeirri stöðnun sem ríkir í opinberri fjárfestingu í íslenskri kvikmyndagerð með þeim afleiðingum að hrun í framleiðslu og flótti úr greininni blasir við.
– Auka þarf ráðstöfunarfé Kvikmyndasjóðs þegar í stað í samræmi við þróun greinarinnar og þá menningarlegu nauðsyn og skyldu að tryggja framboð á íslensku kvikmynda- og sjónvarpsefni.
– Fjármagna þarf Sjónvarpssjóð sem stofnaður var 2024, í samræmi við löngu samþykkta kvikmyndastefnu, en er enn ófjármagnaður.
– Gera þarf án tafar nýtt fjögurra ára samkomulag við greinina til að tryggja fyrirsjáanleika og stöðugleika og eðlilegan vöxt og viðgang greinarinnar.
– Hraða verður endurskoðun laga um endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar í virku samráði við fulltrúa greinarinnar til að koma í veg fyrir óvissu og stöðnun.