Á aðalfundi Bandalags íslenskra listamanna þann 22. mars 2026 var samþykkt ályktun þar sem stjórnvöld eru hvött til að grípa þegar í stað til aðgerða vegna þeirrar stöðnunar sem ríkir í opinberri fjárfestingu í íslenskri kvikmyndagerð.
Í ályktuninni er bent á að afleiðingar stöðnunarinnar séu þegar farnar að koma fram í samdrætti í framleiðslu, aukinni óvissu og hættu á brottflutningi sérhæfðs starfsfólks úr greininni. BÍL varar við því að án markvissra aðgerða sé hætta á alvarlegum samdrætti í íslenskri kvikmynda- og sjónvarpsframleiðslu á næstu árum.
Bandalagið leggur áherslu á að íslensk kvikmyndagerð gegni lykilhlutverki í varðveislu og þróun íslenskrar tungu, menningar og sjálfsmyndar. Auk menningarlegs mikilvægis sé kvikmyndagerð jafnframt öflug atvinnu- og útflutningsgrein sem skapi verðmæti, sérhæfð störf og aukna alþjóðlega sýnileika fyrir Ísland.
Í ályktuninni er sérstaklega kallað eftir eftirfarandi aðgerðum:
- Að ráðstöfunarfé Kvikmyndasjóðs verði aukið án tafar í samræmi við þróun greinarinnar og þá menningarlegu skyldu að tryggja framboð á íslensku kvikmynda- og sjónvarpsefni.
- Að Sjónvarpssjóður, sem stofnaður var árið 2024 samkvæmt gildandi kvikmyndastefnu, verði fjármagnaður og tekinn í notkun.
- Að gert verði nýtt fjögurra ára samkomulag milli stjórnvalda og greinarinnar til að tryggja fyrirsjáanleika, stöðugleika og eðlilegan vöxt.
- Að endurskoðun laga um endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar verði hraðað í virku samráði við fulltrúa greinarinnar til að draga úr óvissu og koma í veg fyrir frekari stöðnun.
BÍL telur að með þessum aðgerðum verði hægt að styrkja undirstöður íslenskrar kvikmyndagerðar og tryggja að íslenskar sögur, tungumál og menning eigi áfram sterka rödd á skjám landsmanna og á alþjóðavettvangi.
Kær kveðja.