Félag íslenskra hljómlistarmanna (FÍH) og systursamtök þess á Norðurlöndum gefa í dag út sameiginlega yfirlýsingu þar sem þau lýsa yfir alvarlegum áhyggjum vegna vaxandi AI-samstarfs plötuútgefenda við tæknifyrirtæki og stafræna tónlistarþjónustu, þar á meðal Spotify. Yfirlýsinguna styðja einnig FIM (alþjóðasamband stéttarfélaga tónlistarflytjenda),IAO (alþjóðasamband tónlistarflytjenda) og BÍL (Bandalag íslenskra listamanna)

Í yfirlýsingunni er bent á að plötuútgefendur hafi farið að leyfa notkun á tónlistarsöfnum sínum í þjálfun gervigreindar og framleiðslu á tilbúinni tónlist — án þess að leita samþykkis þeirra hljómlistarmanna sem hljóðfæraleikurinn og raddirnar eru upprunnar frá. Universal Music Group (UMG) er sérstaklega nefnt sem dæmi, enda hefur félagið þegar gert samninga við AI-fyrirtæki eins og Udio og Spotify og leitar nú jafnframt að nýjum heimildum frá flytjendum í gegnum uppfærðar samningsklásúlur — sem bendir til þess að upprunalegu samningarnir hafi aldrei veitt slíkar heimildir.

FÍH og hin norrænu systurfélögin undirstrika sérstaklega stöðu hljómlistarmanna í bakgrunni — þ.e. hljómlistarmanna sem spila á hljóðupptökum án þess að vera nafngreindir á þeim. Réttindi þeirra eru að jafnaði ekki háð skriflegum samningum við plötuútgefendur, og því geta útgefendur ekki komið fram fyrir hönd þegar kemur að leyfisveitingum fyrir gervigreind. Félögin hafna alfarið öllum tilraunum útgefenda varðandi að gera tilkall til réttinda ónafngreindra flytjenda í tengslum við gervigreind.

„Tónlist er ekki bara gögn. Hún er mannleg tjáning, sköpunarkraftur og menning,“

segir í yfirlýsingunni.

FÍH og öll norrænu félögin sem undirrituðu fara fram á að plötuútgefendur, AI-fyrirtæki og stafrænar tónlistarþjónustur taki beinan þátt í samningaviðræðum við fulltrúa hljómlistarmanna og að framtíð gervigreindar í tónlist byggi á kjarasamningum sem tryggi samþykki, gagnsæi, sanngjarna þóknun og virðingu fyrir listrænum réttindum.

Frekari upplýsingar: Gunnar Hrafnsson, formaður FÍH s: 6951123

Hér er hægt að sjá yfirlýsinguna í heild sinni.

Undirritunaraðilar:

Sara Indiro
Formaður, Stéttarfélags danskra listamanna og Performex

Thomas Sandberg
Formaður, Stéttarfélag danskra tónlistarflytjenda

Marius Øvrebø-Engemoen
Framkvæmdastjóri, GramArt

Trine Kaae Jorst
Lögfræðingur, Performex

Mia Kari
Formaður, Stéttarfélag finnskra tónlistarflytjenda

Hans Ole Rian
Forseti, CREO

Gunnar Hrafnsson
Formaður, Félag íslenskra hljómlistarmanna (FÍH)

Karin Inde
Formaður, Stéttarfélag sænskra tónlistarflytjenda

Gunnar Jönsson
Formaður, Stéttarfélag sæbnskra tónlistarflytjenda í sinfónískri tónlist (Symf)

Stefan Lagrell
Framkvæmdastjóri, SAMI

Simon Norrthon
Forseti, Sænskt félag sviðs- og kvikmyndalistar

Unirritunaraðilar f.h. samtaka sem styðja yfirlýsinguna:

Benoît Machuel
Aðalritari, FIM – Alþjóðasamband stéttarfélaga tónlistarflytjenda

Nacho Carcía Vega
Forseti, IAO – Alþjóðasamband tónlistarflytjenda

Jóna Hlíf Halldórsdóttir
Forseti, BÍL – Bandalag íslenskra listamanna