Á aðalfundi Bandalags íslenskra listamanna, sem haldinn var 22. mars 2026, var eftirfarandi ályktun samþykkt:
Listamannalaun eru grundvöllur og forsenda alls listalífs í landinu. Án listamannalauna væri menningarlíf landsins mun fátækara.
Þau hafa þó engan veginn fylgt launaþróun í landinu þrátt fyrir að lögum samkvæmt eigi þau m.a. að taka mið af henni. Nú er svo komið að þau duga engan veginn til að standa undir launatengdum gjöldum, tryggingargjaldi og lífeyrisframlögum sem verktökum ber að greiða og ná ekki viðmiði skattsins um reiknað endurgjald fyrir sjálfstætt starfandi listamenn. Þá mega þeir sem hljóta listamannalaun ekki stunda aðra atvinnu nema sem nemur 33% starfi á meðan þeir hljóta listamannalaun.
Fæstir listamenn hafa mörg önnur tækifæri til tekjuöflunar. Listamannalaunin eru því orðin að fátækragildru.
Svo uppsker sá sem sáir. Sýnt hefur verið fram á að hver króna af opinberum stuðningi til menningar og lista skili sér þrefallt aftur í hagkerfið. Eigi íslenskar listir og menning að halda áfram að blómstra og mynda þá innviði sem hafa borið hróður Íslands langt út fyrir landsteinana og eru grundvöllur farsæls samfélags og annarra atvinnugreina á við ferðaþjónustu, verða íslensk stjórnvöld að hafa hugrekki og framsýni til að fjárfesta í frumsköpun listafólks. Skilvirkasta leiðin til þess eru listamannalaun sem duga fólki til framfærslu.