Bandalag íslenskra listamanna, í samstarfi við Samtök tónlistarskóla í Reykjavík og fulltrúa listdansskóla á höfuðborgarsvæðinu, stendur fyrir opnum fundi og pallborðsumræðum um stöðu og framtíð lista, listmenntunar og menningar í Reykjavík.
Fundurinn fer fram í Tjarnarbíói laugardaginn 9. maí kl. 14:00–16:00 og eru allir velkomnir.Á fundinum verður rætt við frambjóðendur allra flokka um framtíð menningar í Reykjavík og stefnu flokka þeirra í menningarmálum. Sérstök áhersla verður lögð á að Reykjavík sé borg þar sem listafólk vill búa og starfa, og að listmenntun sé tryggð með jöfnu aðgengi fyrir alla.
Einnig verður fjallað um áhrif gervigreindar, listkennslu – þar á meðal tónlistar- og danskennslu – og jafna möguleika til þátttöku.
Við hlökkum til að sjá ykkur.
Dagskrá
14:00 – Jóna Hlíf Halldórsdóttir, forseti Bandalags íslenskra listamanna, flytur opnunarávarp
15:30–16:00 – Spurningar úr sal
Þeir sem hafa boðað komu sína á kosningafundinn:
Arna Magnea Danks, Vinstrið
Björg Magnúsdóttir, Oddviti Viðreisn
Einar Sveinbjörn Guðmundsson, Flokkur fólksins
Einar Þorsteinsson, Framsóknarflokkurinn
Hjördís Dröfn Vilhjálmsdóttir, Góðan daginn framboðið
Hlédís Maren Guðmundsdóttir, Miðflokkurinn
Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns, Píratar,
Rúnar Freyr Gíslason, Sjálfstæðisflokkurinn
Silja Sóley Birgisdóttir, Oddviti Sósíalistaflokks Íslands
Skúli Helgason, Samfylkingin