List fyrir alla er barnamenningarverkefni á vegum mennta- og menningarmálaráðuneytis, sem ætlað er að miðla listviðburðum til barna og ungmenna um land allt og jafna þannig aðgengi barna á grunnskólaaldri að fjölbreyttum og vönduðum listviðburðum óháð búsetu og efnahag.
Starfandi listamenn sem og stofnanir og aðrir lögaðilar er sinna barnamenningu á einhvern hátt geta sótt um. Umsóknarfrestur er til 15. mars nk.
Nánar má lesa um verkefnið undir UM VERKEFNIÐ hér á heimasíðunni og þar má einnig finna handbók fyrir listamenn sem vert er að skoða
Umsækjendum er gert að sækja um á rafrænu formi hér á heimasíðu List fyrir alla undir UMSÓKN.
Nánari upplýsingar má fá hjá verkefnastjóra List fyrir alla, Elfu Lilju eða senda tölvupóst á info@listfyriralla.is