Reykjavík 29. jaúnar 2022

Aðalfundur BÍL var boðaður á heimasíðu bandalagsins þann 19. janúar síðastliðinn. Fundurinn verður haldin á Korpúlfsstöðum laugardaginn 19. febrúar og hefst klukkan 14:00. með fyrivara um breytingar á sóttvörnum.

Dagskrá:

  1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
  2. Lögmæti fundarins kannað og staðfest
  3. Fundargerð síðasta aðalfundar
  4. Skýrsla forseta um starf BÍL 2021
  5. Ársreikningar 2021
  6. Lagabreytingar
  7. Kosning forseta
  8. Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga
  9. Starfsáætlun 2022
  10. Önnur mál

Ekki liggja fyrir fundinum neinar tillögur að lagbreytingu.

Aðalfund BÍL fer fram skv. lögum Bandalagsins, sem eru aðgengileg á heimasíðunni. Minnt er á að auk stjórnarmanns getur hvert aðildarfélag tilnefnt fjóra fulltrúa til setu á aðalfundinum með atkvæðisrétt, þannig að hvert aðildarfélag fer með fimm atkvæði. Sambandsfélag getur að auki tilnefnt einn fulltrúa fyrir hvert sjálfstætt starfandi félag innan sambandsins. Viku fyrir aðalfund tilnefnir hvert aðildarfélag atkvæðisbæra fulltrúa til setu á aðalfundi.

Allir félagsmenn hafa seturétt á aðalfundi og er hvatt til þess að aðildarfélögin auglýsi og hvetji félagsmenn til að mæta.

Virðingarfyllst,

Erling Jóhannesson,