Aðalfundur BÍL – Bandalags íslenskra listamanna 2018, verður haldinn laugardaginn 17. febrúar í Iðnó og hefst hann kl. 11:00. Í þetta sinn verður ekki haldið málþing í tengslum við fundinn heldur er stefnt að málþingi um málefni höfunda- og flytjendaréttar í mars.
Um aðalfund BÍL fer skv. lögum Bandalagsins, sem eru aðgengileg á heimasíðunni. Minnt er á að auk stjórnarmanns getur hvert aðildarfélag tilnefnt fjóra fulltrúa til setu á aðalfundinum með atkvæðisrétt, þannig að hvert aðildarfélag fer með fimm atkvæði. Sambandsfélag getur að auki tilnefnt einn fulltrúa fyrir hvert sjálfstætt starfandi félag innan sambandsins. Þess er óskað að tilkynningar um fulltrúa með atkvæðisrétt séu sendar forseta a.m.k. viku fyrir fundinn. Til áréttingar þá eiga allir félagsmenn aðildarfélaganna rétt til setu á fundinum með málfrelsi og tillögurétt, því er hvatt til þess að almennum félögum sé kynnt dagsetning fundarins með góðum fyrirvara og hann auglýstur á heimasíðum aðildarfélaganna.
Dagskrá fundarins ásamt tillögu stjórnar að lagabreytingum og starfsáætlun 2018 verður send út a.m.k. tveimur vikum fyrir fundinn.