Í gær var 39 starfsmönnum Ríkisútvarpsins sagt upp störfum og boðaðar enn frekari uppsagnir á næstunni. Aðgerðirnar þykja bæði harðneskjulegar og illa rökstuddar. Nægir að nefna að enn er fjárlagafrumvarpið ekki komið til annarrar umræðu og því ekki útséð um endanlega niðurstöðu hinns opinbera framlags til stofnunarinnar. Þá þykir með ólíkindum að dagskrárgerðarmönnum hafi verið sagt að yfirgefa starfsstöðvar sínar tafarlaust og þess ekki óskað að það starfaði sinn lögbundna uppsagnarfrest.

Af þessu tilefni hefur verið hafin undirskriftasöfnun á vefnum þar sem uppsögnunum er mótmælt og stjórnvöld hvött til að beita sér svo hægt verði að rýmka fjárhag stofunarinnar og afturkalla uppsagnirnar. Allir formenn aðildarfélaga Bandalags íslenskra listamanna og forseti eru meðal þeirra sem skrifuðu undir yfirlýsingu af þessu tilefni, sem send var stjórnvöldum og fjölmiðlum. Yfirlýsingin er svohljóðandi:

Ríkisútvarpið er ein allra mikilvægasta stofnun lýðveldisins Íslands. Og gott betur því um átta áratuga skeið hefur hún verið einn af burðarásum menningarlífsins, atkvæðamikil í mótun sjálfsvitundar okkar, áttaviti og staðsetningartæki. Sérstaða Ríkisútvarpsins er að þessu leyti alger í flóru íslenskra fjölmiðla. Það er því með nokkrum ólíkindum ef stjórnvöld ætla að láta viðgangast þann niðurskurð sem nú hefur verið boðaður þar sem höggva á stór skörð í mannaflann og hola innan dagskrána.
Við undirrituð viljum mótmæla þessum gerningi og hvetjum þingheim til að afturkalla hann hið bráðasta og búa svo um hnúta að Ríkisútvarpinu verði áfram gert kleift að sinna lögboðnu menningar- og fræðsluhlutverki sínu. Það hefur aldrei verið brýnna en einmitt nú.

Andri Snær Magnason, rithöfundur
Björn Th. Árnason, formaður Félags íslenskra hljómlistarmanna
Guðrún Kvaran, prófessor
Gunnar Guðbjörnsson, formaður Félags íslenskra tónlistarmanna
Hrafnhildur Gunnarsdóttir, formaður Félags kvikmyndargerðarmanna
Hrafnhildur Sigurðardóttir, formaður Sambands íslenskra myndlistarmanna
Jakob Frímann Magnússon, formaður Félags tónskálda og textahöfunda
Jón Páll Eyjólfsson, formaður Félags leikstjóra á Íslandi
Kjartan Ólafsson, formaður Tónskáldafélags Íslands
Kolbrún Halldórsdóttir, forseti Bandalags íslenskra listamanna
Kristín Helga Gunnarsdóttir, rithöfundur
Kristín Jóhannesdóttir, leikstjóri
Kristín Steinsdóttir, formaður Rithöfundasambands Íslands
Kristján Árnason, prófessor
Margrét Örnólfsdóttir, formaður Félags leikskálda og handritshöfunda
Pétur Gunnarsson, rithöfundur
Ragnar Bragason, formaður Samtaka kvikmyndaleikstjóra
Randver Þorláksson, formaður Félags íslenskra leikara
Rebekka Ingimundardóttir, formaður Félags leikmynda- og búningahöfunda
Sigríður Magnúsdóttir, formaður Félags íslenskra listdansara
Sigríður Ólafsdóttir, formaður Arkitektafélags Íslands
Sigurður Pálsson, rithöfundur
Sigurbjörg Þrastardóttir, rithöfundur
Sveinn Einarsson, leikstjóri
Viðar Hreinsson, bókmenntafræðingur
Þorbjörn Broddason, prófessor