Rannsóknasetur skapandi greina (RSG) stendur að ráðstefnunni Menningarauðlind ferðaþjónustunnar, ráðstefnu um menningarferðaþjónustu og nýja ferðamálastefnu til 2030 þann 14. maí í Hofi, Akureyri. Ráðstefnan er haldin í samstarfi við Rannsóknamiðstöð ferðamála (RMF) og hlaut verkefnið styrk úr Hvata, sjóði menningar- og viðskiptaráðuneytisins. Einnig koma að ráðstefnunni fjöldi aðila úr menningargeiranum og ferðaþjónustunni.

Markmiðið með ráðstefnunni er að skoða samspil og hlutverk menningar í ferðaþjónustu. Enn fremur er ráðstefnunni ætlað að skoða hvernig efla má gagnasöfn og rannsóknavirkni sem stuðlað getur að þróun og framförum á sviði menningarferðaþjónustu.

Á ráðstefnunni gefst gestum kostur á að heyra margvíslegar dæmisögur um vel heppnaða menningarferðaþjónustu og fræðileg erindi um rannsóknir á þessu sviði. Allir þátttakendur geta tekið þátt í hópavinnu um fjögur þemu sem verður nýtt í að þróa rannsóknastefnu RSG á sviði menningarferðaþjónustu. Þemun eru: Samstarf og klasahugsun, Markaðs- og kynningarmál, Vöruþróun og fjárfestingar, Gagnasöfn og rannsóknaáætlun.

Viðburðinum verður streymt en gert verður hlé á streyminu meðan á hópavinnu stendur.

Ráðstefnustjóri er Sigríður Örvarsdóttir, safnstjóri Listasafnsins á Akureyri

Dagskrá

09:00 Ávarp – fulltrúi menningarmálaráðherra

09:10 Menningarferðaþjónusta í ferðamálastefnu Svanhildur Konráðsdóttir, formaður starfshóps um menningarferðaþjónustu í mótun ferðamálastefnu og forstjóri Hörpu

09:20 Dæmisögur af menningarferðaþjónustu:

Landnámssetrið í Borgarnesi – Sigríður Margrét Guðmundsdóttir, forstöðumaður Landnámssetursins

Galdrasýning á Ströndum – Jón Jónsson, þjóðfræðingur

1238 Baráttan um Ísland – Freyja Rut Emilsdóttir, framkvæmdastjóri

Bræðslan: Geta viðburðir styrkt brothættar byggðir? – Áskell Heiðar Ásgeirsson, lektor við Ferðamáladeild Háskólans á Hólum

Þórbergssetur – Þorbjörg Arnórsdóttir, forstöðumaður Þórbergsseturs

Lava Show – Ragnhildur Ágústsdóttir LadyLava, stofnandi LavaShow

10:30 Kaffihlé

10:45 Áfangastaðir – sögur, söfn og frumkvöðlastarf

Rannsóknir og þróunarverkefni:

Vistkerfi menningararfs og ferðaþjónustu: Frásagnir og skapandi ferli til eflingar samfélaga og byggða –Katrín Anna Lund, prófessor í ferðamálafræði við Háskóla Íslands

Sameiginleg hagsmunamál safna og ferðaþjónustu á Íslandi –Guðrún Dröfn Whitehead, lektor í safnafræði

Óáþreifanlegur menningararfur: Þróun og sjálfbærni -Ingibjörg Benediktsdóttir, verkefnastjóri hjá Þekkingarneti Þingeyinga

Túrismi, trauma og tækni til miðlunar –Sigurjón Hafsteinsson, prófessor við Háskóla Íslands

11:45 Stuttar umræður

12:00 Hádegisverður

13:00 Hópavinna

Samstarf og klasahugsun

Markaðs- og kynningarmál

Vöruþróun og fjárfestingar

Gagnasöfn og rannsóknaáætlun

14:30 Kaffihlé 

14:50 Kynningar og umræður á hópastarfi 

15:50 Lokaorð – fulltrúi atvinnuvegaráðherra 

16:00 Ráðstefnu slitið

Vinsamlegast skráið mætingu ýmist á staðinn eða í streymi hér að neðan. Skráningu lýkur kl. 12 mánudaginn 5. maí.