Aðalfundur Bandalags íslenskra listamanna 2024, verður haldinn laugardaginn 16. mars í Listasafni Reykjavíkur og  hefst hann kl. 14:00.

Aðalfund BÍL fer fram skv. lögum Bandalagsins, sem eru aðgengileg á heimasíðu BÍL. Minnt er á að auk stjórnarmanns getur hvert aðildarfélag tilnefnt fjóra fulltrúa til setu á aðalfundinum með atkvæðisrétt, þannig að hvert aðildarfélag fer með fimm atkvæði. Sambandsfélag getur að auki tilnefnt einn fulltrúa fyrir hvert sjálfstætt starfandi félag innan sambandsins.

Þess er óskað að tilkynningar um aðalfundafulltrúa með atkvæðisrétt séu sendar forseta a.m.k. viku fyrir fundinn.

Allir félagsmenn aðildarfélaga BÍL eiga rétt til setu á fundinum með málfrelsi og tillögurétt, því er hvatt til þess að félögum aðildarfélaganna sé kynnt dagsetning fundarins með góðum fyrirvara og hann auglýstur á miðlum aðiladarfélaganna.

Dagskrá fundarins ásamt tillögu stjórnar að lagabreytingum verður send út a.m.k.tveimur vikum fyrir fundinn.

Forseti gefur ekki kost á sér til áframhaldandi setu og þurfa famboð til embættisins að berast stjórn BÍL að minnsta viku fyrir boðaðann aðalfund.