Aðalfundur Bandalags íslenskra listamanna 2022, verður haldinn laugardaginn 19. febrúar, fundarstaður verður auglýstur síðar
Aðalfundur fer fram skv. lögum BÍL og eru þau aðgengileg á heimasíði Bandalagsins.
http://bil.is/um-bil/log-fyrir-bil
Minnt er á að auk stjórnarmanns getur hvert aðildarfélag tilnefnt fjóra fulltrúa til setu á aðalfundinum með atkvæðisrétt . Hvert aðildarfélag fer því með fimm atkvæði. Sambandsfélag getur auk þess tilnefnt einn fulltrúa fyrir hvert sjálfstætt starfandi félag innan sambandsins. Tilkynning um fulltrúa á fundinn þarf að berast forseta viku fyrir fundinn, en rétt að árétta að allir félagsmenn aðildarfélaganna hafa rétt til setu á fundinum með málfrelsi og tillögurétt. Því er hvatt til þess að aðildarfélögin auglýsi fundinn á heimasíðum sínum.
Dagskrá fundarins, tilllaga stjórnar að lagabreytingum og starfsáætlun verða send út tveim vikum fyrir fund.