Aðalfundur Bandalags íslenskra listamanna 2023, verður haldinn laugardaginn 25. Febrúar  kl. 13:00 í Tjarnarbíói,

Aðalfundur fer fram skv. lögum BÍL og eru þau aðgengileg á heimasíði Bandalagsins.

http://bil.is/um-bil/log-fyrir-bil

Minnt er á að  auk stjórnarmanns getur hvert aðildarfélag tilnefnt fjóra fulltrúa til setu á aðalfundinum með atkvæðisrétt . Hvert aðildarfélag  fer því með fimm atkvæði. Sambandsfélag getur auk þess tilnefnt einn fulltrúa fyrir hvert sjálfstætt starfandi félag innan sambandsins.  Tilkynning um fulltrúa á fundinn þarf að berast forseta viku fyrir fundinn, en rétt að árétta að allir félagsmenn aðildarfélaganna hafa rétt til setu á fundinum með málfrelsi og tillögurétt. Því er hvatt til þess að aðildarefélögin auglýsi fundinn á heimasíðum sínum.

Dagskrá fundarins, tilllaga stjórnar að lagabreytingum og starfsáætlun mun verða send út tveim vikum fyrir fund.