Stjórn Bandalags íslenskra listamanna hefur sent spurningar á alla oddvita á landsvísu í aðdraganda komandi sveitarstjórnarkosninga.

Markmið þeirra er að draga fram stefnu og áherslur stjórnmálaflokka í menningarmálum og hvernig þau hyggjast standa að uppbyggingu öflugra innviða fyrir listir og menningu í sínum sveitarfélögum.

Menning og listir eru mikilvæg atvinnugrein í íslensku samfélagi. Samkvæmt skýrslu Ágúst Ólafur Ágústsson, sem unnin var fyrir menningar- og viðskiptaráðuneytið 2024, nam framlag skapandi greina um 3,5% af landsframleiðslu árið 2022, eða um 150 milljörðum króna. Þar kemur jafnframt fram að hver króna sem fjárfest er í greininni getur skilað allt að þreföldum efnahagslegum ávinningi.

Listsköpun og menningarstarf eru hornsteinn tjáningarfrelsis og lýðræðislegs samfélags og gegna lykilhlutverki í lífsgæðum og félagslegri velferð. Aðgengi allra að menningu, óháð búsetu, efnahag, aldri eða bakgrunni, er forsenda virkrar þátttöku í samfélaginu og öflugrar menningaruppbyggingar. Til að það verði að veruleika þarf að fjárfesta í listafólki með því að tryggja því heilbrigt starfsumhverfi, þar sem tími, rými og tækifæri til sköpunar eru tryggð.

Svör oddvita verða birt opinberlega af BÍL fyrir komandi kosningar.

Eftirfarandi spurningar voru sendar til oddvita:

  1. Búsetuefling:
    Leggur þinn flokkur upp með að varðveita og efla menningarlíf í þínu sveitarfélagi?
  2. Rými:
    Ætlar þinn flokkur að tryggja rými fyrir listsköpun, æfingar, tónleika og sýningar?
  3. Bókasöfn:
    Ætlar þinn flokkur að beita sér fyrir þróun almenningsbókasafna í takt við þróun á höfuðborgarsvæðinu og á Norðurlöndum?
  4. Styrkir til menningarstarfsemi:
    Ætlar þinn flokkur að efla menningarstyrki og gera úthlutunarferlið gagnsærra og faglegra, meðal annars með því að úthlutun sé í höndum fagráðs sem er ekki pólitískt skipað?
  5. Greiðslur til listamanna:
    Ætlar þinn flokkur að tryggja að listamenn og hönnuðir fái sanngjarna greiðslu fyrir vinnu sína í verkefnum á vegum sveitarfélagsins?
  6. Gervigreind:
    Ætlar þinn flokkur að móta skýra stefnu um notkun gervigreindar hjá sveitarfélaginu þannig að hún styðji við mannlega sköpun og dragi ekki úr atvinnutækifærum lista- og textagerðarfólks?
  7. Tónlistarkennsla:
    Ætlar þinn flokkur að tryggja starfsemi tónlistarskóla og jafnt aðgengi að tónlistarnámi án hindrana sem geta leitt til mismununar?
  8. Listdansnám:
    Ætlar þinn flokkur að vera brautryðjandi í að styrkja listdansnám barna til jafns við íþróttastarf og tónlistarnám?
  9. Fjármagn í umsýslu menningar:
    Ætlar þinn flokkur að tryggja nægilegt fjármagn til rekstrar og fagmannlegrar umsýslu menningarstarfsemi sem sveitarfélagið rekur?
  10. Starfsfólk á sviði menningar:
    Ætlar þinn flokkur að sjá til þess að menningarfulltrúi starfi hjá sveitarfélaginu?
  11. Regluverk um menningarviðburði:
    Ætlar þinn flokkur að einfalda og skýra regluverk sem gildir um skipulagningu menningarviðburða til að auðvelda framkvæmd og þátttöku?
  12. Menningarráð:
    Ætlar þinn flokkur að stofna faglegt menningarráð sem fer með stefnumótun og ráðgjöf um menningarstarfsemi sveitarfélagsins?
  13. Menningarstefna:
    Ætlar þinn flokkur að stuðla að því að mótuð verði menningarstefna í þínu sveitarfélagi ef hún er ekki til nú þegar, og að markmið hennar séu bundin í aðgerðum ef hún er þegar til staðar?