Leiklistarhátíðin ACT ALONE og Bandalag íslenskra listamanna halda málþing um atvinnutækifæri listamanna utan höfuðborgarinnar á Suðureyri við Súgandafjörð föstudag 11. águst 2017, kl. 16:00 – 18:00

Þegar fjallað er um atvinnulífið í opinberum skýrslum eða rannsóknum félagsvísindanna koma oftar en ekki í ljós veikleikar sem flestir virðast sammála um að þurfi að lagfæra. Þar er áberandi einhæfni atvinnulífsins, sérstaklega á dreifbýlli svæðum, og lögð áhersla á mikilvægi þess að aukið verði við fjölbreytnina, enda almennt talið að kraftmikið og fjölbreytt atvinnulíf sé grundvöllur þess að ungt fólk vilji setjast að á landsbyggðinni.

En viðleitni stjórnvalda til að hafa áhrif á kraftinn og fjölbreytnina í atvinnulífinu hefur ekki skilað ásættanlegum árangri fram til þessa. Ýmsar leiðir til úrbóta hafa verið kannaðar og undanfarið hefur mátt greina sameiginlegar áherslur stjórnvalda, bæði ríkis og sveitarfélaga, þar sem horft hefur verið til möguleika nýsköpunar, rannsókna og þróunar. Í því sambandi er oftar en ekki vísað til þess geira atvinnulífsins sem kallaður hefur verið SKAPANDI GREINAR. Listamenn hafa staldrað við framsetningu stjórnvalda á hugmyndum um eflingu SKAPANDI GREINA og telja óljóst hvort LISTIRNAR tilheyri því mengi sem þar er vísað er til. En í öllu falli blasir það við að kraftmikið og fjölbreytt atvinnulíf er sameiginlegt viðfangsefni stjórnvalda og atvinnulífsins og í ljósi þess að listamenn bera uppi hluta þess geira sem telst til SKAPANDI GREINA hafa Bandalag íslenskra listamanna og leiklistarhátíðin ACT ALONE ákveðið að efna til málþings þar sem horft verður til listgreinanna sem burðarstoða í fjölbreyttu atvinnulífi og skoðaðir möguleikar listamanna til að starfa á atvinnugrundvelli utan höfuðborgarsvæðisins.

Frummælendur á málþinginu verða
Jón Páll Eyjólfsson leikhússtjóri hjá Leikfélagi Akureyrar,
Karna Sigurðardóttir forstöðumaður​ Menningarstofu Fjarðabyggðar og
Einar Þór Gunnlaugsson leikstjóri.
Auk þeirra verða þátttakendur í pallborðsumræðum
Teitur Björn Einarsson allþingismaður og
Elfar Logi Hannesson leikari og stjórnandi hátíðarinnar Act Alone.
Bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar Gísli H. Halldórsson setur þingið og fundarstjóri er
Kolbrún Halldórsdóttir, forseti Bandalags íslenskra listamanna.