List fyrir alla auglýsir eftir umsóknum um listviðburði eða verkefni á sviði barnamenningar fyrir grunnskólabörn.

List fyrir alla er barnamenningarverkefni á vegum mennta- og menningarmálaráðuneytis, sem ætlað er að miðla listviðburðum til barna og ungmenna um land allt og jafna þannig aðgengi barna á grunnskólaaldri að fjölbreyttum og vönduðum listviðburðum óháð búsetu og efnahag.

Starfandi listamenn sem og stofnanir og aðrir lögaðilar er sinna barnamenningu á einhvern hátt geta sótt um. Umsóknarfrestur er til 19. mars nk.

Mat á umsóknum
Valnefnd metur umsóknir og gildi þeirra með hliðsjón af því hvernig þær falla að markmiðum verkefnisins List fyrir alla. Listviðburðir og verkefni skulu í öllum tilvikum vera unnin af metnaði og af fagfólki. Við mat á umsóknum er valnefnd heimilt að leita umsagnar, gerist þess þörf.

Ákvörðun um úthlutun mun liggja fyrir eigi síðar en 4. maí 2018.

Umsækjendum er gert að sækja um á rafrænu formi hér á heimasíðu List fyrir alla undir UMSÓKN.