Jónas Sen skrifar í Fréttablaðið í dag:
Á Íslandi er áberandi gróska í tónlistarlífinu. Í hverjum mánuði er haldinn fjöldi tónleika, sérstaklega á höfuðborgarsvæðinu. Tónlistarskólar eru afar margir. Sjálfsagður hlutur þykir að senda börn í tónlistarnám. Slíkt nám getur borið ríkulegan ávöxt. Það sannaðist er Björk Guðmundsdóttir kom Íslandi á sínum tíma á kort tónlistarheimsins svo um munaði. Aðrir hafa fetað í fótspor hennar. Þar á meðal er Sigur Rós og Of Monsters and Men. Airwaves-hátíðin vekur líka mikla athygli og þegar hún er haldin koma hingað erlendir umboðsmenn og blaðafólk í leit að stjörnum morgundagsins.
Íslendingar eru því montnir af tónlistarmenningu sinni. Í gamla daga höfðum við bara fornbókmenntirnar til að státa okkur af og landslagið sem málararnir okkar kepptust við að mæra. Nú er það hins vegar að stórum hluta tónlistarfólkið sem ber hróður landsins um víðan völl. Hverjum skyldi það vera að þakka? Jú, tónlistarkennurum. Flestir af okkar frægu músíköntum lærðu í tónlistarskólum.
Þessir skólar eru því mikilvæg undirstaða tónlistarmenningarinnar.
Nú eru tónlistarkennarar sem eru innan Kennarasambandsins í verkfalli. Sveitarfélög og ríkið sömdu nýverið við kennara framhaldsskóla, grunnskóla og leikskóla. Við þessa samninga hafa tónlistarkennarar miðað svo árum skiptir. Þeir vilja núna sanngjarna leiðréttingu á launum sínum til samræmis við aðrar kennarastéttir. Þessa kröfu hefur samninganefnd sveitarfélaganna hunsað síðustu ellefu mánuði.
Að sveitarfélögin skuli ekki bera meiri virðingu fyrir tónlistarkennurum er dapurlegt þegar haft er í huga mikilvægi tónlistarkennslu. Ímyndum okkur að það væri ekki tónlistarkennsla hér. Það þýddi að aðeins ómenntaðir tónlistarmenn héldu uppi tónlistarlífinu. Þeir allra metnaðargjörnustu kynnu vinnukonugripin á gítar, héldu takti á trommusettið, gætu glamrað einhverja hljóma á píanó, spilað á greiðu og kannski sög í leiðinni. Engin sinfóníuhljómsveit eða ópera væri starfandi. Björk, Sigur
Rós, Of Monsters and Men – hvaða lið er nú það? Orgelleikur þekktist ekki í jarðarförum eða brúðkaupum, kirkjutónlist væri kórsöngur þar sem hver syngi með sínu nefi. Áhugamannakórar væru til en ekki menntaður kórstjóri til að stjórna þeim. Eina tónlistin sem þjóðin hefði aðgang að væri á erlendum geisladiskum og Spotify. Íslensk tónlist væri óþekkt fyrirbæri og íslenskir tónlistarmenn líka.
Hvernig menning væri það? Þið hjá sveitarfélögunum, hafið þið hugleitt þetta? Með því að samþykkja ekki eðlilegar launakröfur tónlistarkennara eruð þið að stuðla að því að tónlistarkennsla verði miklu lakari en hún hefur áður verið. Við viljum ekki slíkt samfélag. Við erum menningarþjóð og þar skiptir tónlistin gríðarlegu máli. Ekki eyðileggja hana.