Í tengslum við aðalfund BÍL 8. febrúar sl. var haldið málþing með yfirskriftinni

Hringlaga box
– hlutverk listanna og þátttaka listamanna í innri endurskoðun og endursköpun samfélagsins

Tekið var til skoðunar með hvaða hætti sköpun auðgar samfélagið, ekki einungis gegnum listræna túlkun og átök heldur ekki síður með skapandi og gagnrýnni nálgun við lausn hvers konar verkefna. Í nýjustu kenningum stjórnunarfræðanna er fjallað um mikilvægi skapandi nálgunar við lausn fjölbreytilegustu viðfangsefna og bent á aðferðir listamanna sem eftirsóknarverðar í því sambandi. Þetta hefur leitt til þess að kallað er eftir kröftum listafólks í þverfaglegu samtali og samstarfi langt út fyrir lista- og menningargeirann; a.m.k. þegar glímt er við heftandi ramma viðtekinna hefða. Listin leitast við að gera kosmos úr kaosi en í samtímanum virðast aðrar greinar menningarinnar, ekki síst fræðin, frekar njóta trausts til markvissrar endurskoðunar og endursköpunar samfélagsins. Nálgun listanna er ekki síður meðvituð, gagnrýnin, greinandi, spurul og speglandi, þótt hún sé vissulega dularfyllri og óræðari. En hví ætti hlutverk og erindi listarinnar sjálfrar að virðast svo framandi hinni almennu orðræðu? Hvað eru mýtur og hvað veruleiki um skapandi vinnubrögð?

Innlegg voru flutt af skapandi fólki með reynslu af því að takast á við fjölbreytt verkefni vítt og breitt um samfélagið. Sérstakur gestur málþingsins var borgarstjórinn í Reykjavík Jón Gnarr. Stutt erindi fluttu Sólrún Sumarliðadóttir tónlistarmaður, Kjartan Pierre Emilsson leikjahönnuður hjá CCP, Sigrún Birgisdóttir deildarforseti hönnunar- og arkitektúrdeildar LHÍ og Saga Garðarsdóttir leikkona.

Málþingsstjóri var Hildigunnur Sverrisdóttir arkitekt.

Nú eru upptökur af erindunum á málþinginu aðgengilegar á vefnum:

Inngangsorð og erindi Sólrúnar Sumarliðadóttur tónlistarmanns

Erindi Kjartans P. Emilssonar leikjahönnuðar

Erindi Sigrúnar Birgisdóttur deildarforseta hönnunar- og arkitektúrdeildar LHÍ

Erindi Sögu Garðarsdóttur listamanns

Erindi borgarstjórans í Reykjavík Jóns Gnarr