Stjórn Bandalags íslenskra listamanna fordæmir þau vinnubrögð sem Alþingi viðhafði við veitingu heiðurslauna Alþingis við afgreiðslu fjárlaga.

Ráðgjafanefnd um heiðurslaun listamanna var sniðgengin en leitað var álits hennar á þeim tveimur listamönnum sem meirihluti allsherjar- og menntamálanefndar hugðist tilnefna með nánast engum fyrirvara. Ekki var leitað tillagna frá ráðgjafanefndinni og samráðið greinilega eingöngu formsatriði. Stjórn BÍL áréttar að faglega skuli staðið að ráðstöfun opinbers fés.

Heiðurslaun Alþingis eru mikilvæg og táknræn fyrir þakkir þjóðarinnar fyrir ævistarf listamanna. Ófagleg málsmeðferð við val þeirra sem verðlaunin hljóta rýrir gildi
þeirra.