Aðalfundur Bandalags íslenskra listamanna verður haldin í Listasafni Reykjavíkur laugardaginn 20. mars og hefst klukkan 14:00. Dagskrá fundarins er samkvæmt lögum bandalagsins:
- Kosning fundarstjóra og fundarritara
- Lögmæti fundarins kannað og staðfest
- Fundargerð síðasta aðalfundar
- Skýrsla forseta um starf BÍL 2020
- Ársreikningar 2020
- Lagabreytingar
- Kosning forseta
- Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga
- Starfsáætlun 2021
- Önnur mál
Ekki liggja fyrir fundinum neinar tillögur að lagbreytingu.
Aðalfund BÍL fer fram skv. lögum Bandalagsins, sem eru aðgengileg á heimasíðunni. Minnt er á að auk stjórnarmanns getur hvert aðildarfélag tilnefnt fjóra fulltrúa til setu á aðalfundinum með atkvæðisrétt, þannig að hvert aðildarfélag fer með fimm atkvæði. Sambandsfélag getur að auki tilnefnt einn fulltrúa fyrir hvert sjálfstætt starfandi félag innan sambandsins. Viku fyrir aðalfund tilnefnir hvert aðildarfélag atkvæðisbæra fulltrúa til setu á aðalfundi.
Allir félagsmenn hafa seturétt á aðalfundi og er hvatt til þess að aðildarfélögin auglýsi og hvetji félagsmenn til að mæta.