Nordisk Kunstnerråd fundaði í fyrsta sinn í Nuuk á Grænlandi, þar sem við ræddum pólitíska og efnahagslega stöðu listafólks og menningarlífs á Norðurlöndum, sem og mikilvægi menningarstefnu og réttinda listafólks.

Við áttum einnig mikilvægan og fróðlegan fund með menningarstofnunum og listafólki frá Grænlandi. Umræðurnar undirstrikuðu brýna þörf fyrir heildstæða menningarstefnu og löggjöf sem styrkir stöðu lista og menningar á Grænlandi.

Á sama tíma var afar hvetjandi að verða vitni að öflugu og vaxandi menningarlífi á Grænlandi. Mikill áhugi er frá öðrum löndum á samstarfi við grænlenskt listafólk og menningarstofnanir, og ljóst er að eftirspurn eftir alþjóðlegu samstarfi og tengslamyndun fer vaxandi. Hins vegar eru enn verulegar áskoranir til staðar, þar á meðal takmarkað fjármagn, of fá starfsgildi innan menningarstofnana og slæm kjör listafólks.

Bent var á að á síðustu áratugum hafi vægi list- og verkgreina í grænlenska skólakerfinu minnkað og sumar greinar verið sameinaðar í stærri námsgreinar. Þetta hafi haft áhrif á menningarlæsi og miðlun hefðbundinnar þekkingar milli kynslóða, og vakið áhyggjur af því að mikilvæg handverkshefð og menningararfur Grænlands geti glatast ef ekki verður lögð aukin áhersla á list- og verkmenntun

Á tímum óvissu og vaxandi ógnana við lýðræði er mikilvægara en nokkru sinni fyrr að við stöndum saman og eflum samstarf á Norðurlöndum og á norðurslóðum.

Að fundi loknum tókum við þátt í mótmælagöngu ásamt grænlensku þjóðinni í Nuuk og sýndum samstöðu með skilaboðum þeirra til heimsins: „Nei þýðir nei“ og „Grænland er ekki til sölu.“ Mótmælin voru hluti af víðtækari viðbrögðum almennings á Grænlandi gegn erlendum þrýstingi og afskiptum, þar sem lögð var áhersla á sjálfsákvörðunarrétt Grænlendinga og rétt þeirra til að ráða eigin framtíð.

Kærar þakkir til Aili Liimakka Laue og EPI – Eqqumiitsuliornermik Pinngorartitsisut Ingerlatsisullu fyrir hlýjar móttökur, örlæti og gestrisni.

Aðildarsamtök Norræna listamannaráðsins ásamt BÍL eru:

  • KLYS – Konstnärliga och Litterära Yrkesutövares Samarbetsnämnd, Svíþjóð
  • Dansk Kunstnerråd, Danmörk
  • Forum Artis, Finnland
  • Sami Artist Council, Sápmi
  • Kunstnernettverket, Noregur
  • LISA – Listafólkasamtøk Føroya, Færeyjar
  • EPI – Eqqumiitsuliornermik Pinngorartitsisut Ingerlatsisullu, Grænland