Reiknivél BHM
BHM hefur sett upp reiknivél fyrir verð á útseldri vinnu til að auðvelda félagsfólki að reikna út sín mánaðarlaun
Sjálfstæðir atvinnurekendur eru þau sem stunda eigin rekstur, ýmist á eigin kennitölu eða í félagi, oftast einkahlutafélagi.
Þau sem starfa sjálfstætt geta haft aðra í vinnu og bera þá skyldur gagnvart þeim líkt og aðrir vinnuveitendur.
Viss aukavinna og ábyrgð fylgir því að vera sjálfstætt starfandi listamaður.
Listamenn verða sjálfir að standa skil á lögbundnum gjöldum, félagsgjöldum í stéttarfélögum, mótframlögum í sjóði, auk orlofs, veikindaréttar og uppbóta.
Lögbundinn gjöld
- Tryggingjald til ríkisins samtals 6,35%. Sjá sundurliðun:
- Tryggingagjaldið sjálft 4,65% (fjármagnar m.a. greiðslur úr fæðingarorlofssjóði).
- Atvinnutryggingagjald 1,35%
- Gjald í ábyrgðasjóð launa 0,05%
- Markaðsgjald 0,05%
- Lífeyrissjóðsgreiðslur 15,5%
- Endurhæfingarsjóður 0,1%
Félagsgjald í Visku og mótframlög í sjóði
- Félagsgjald í Visku 0,95% af launum.
- Sjúkrasjóður BHM 1% (valkvætt gjald)
- Orlofssjóður BHM 0,25% (valkvætt gjald)
- Starfsmenntunarsjóður BHM 0,22% (valkvætt gjald)
- Starfsþróunarsetur háskólamanna 0,70% (valkvætt gjald)
- Vísindasjóður 1,5% af dagvinnulaunum (valkvætt gjald)
Orlof, veikindi og uppbætur
- Orlofslaun 11,59% til að fjármagna fríin
- 3,1% til að fjármagna veikindadaga.
- 4,3% til að fjármagna löghelga frídaga.
- 4,1% Desember og orlofsuppbót.
Samtals amk. 48,39% sem bætast þarf við tímakaup. Til viðbótar má nefna tryggingar sem þarf að skoða í tengslum við vinnuna, hugsanlegan vinnufatnað, verkfæri og þessháttar.
Í BHM eru 24 aðildarfélög og yfir 18 þúsund félagar með margvíslegan bakgrunn, menntun og þekkingu. Innan vébanda BÍL eru eftirfarandi stéttarfélög aðildarfélög BHM: Félag íslenskra listamanna í sviðslistum og kvikmyndum, Félag leikstjóra á Íslandi, Félag íslenskra hljómlistarmanna og Rithöfundasamband Íslands.
Viska er eitt af aðildarfélögum BHM og starfar sem stéttarfélag háskólamenntaðra, óháð starfsvettvangi eða sérhæfingu. Að félaginu tengjast meðal annars Samband íslenskra myndlistarmanna og Arkitektafélag Íslands.