- janúar síðastliðinn var aðildarfélögum BÍL sent fundarboð aðalfundar 2020. Fundurinn verður haldin í Iðnó laugardaginn 29. Febrúar og hefst klukkan 14:00.
Dagskrá:
- Kosning fundarstjóra og fundarritara
- Lögmæti fundarins kannað og staðfest
- Fundargerð síðasta aðalfundar
- Skýrsla forseta um starf BÍL 2019
- Ársreikningar 2019
- Lagabreytingar
- Kosning forseta
- Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga
- Starfsáætlun 2020
- Önnur mál
Ekki liggja fyrir fundinum neinar tillögur að lagbreytingu.
Aðalfund BÍL fer fram skv. lögum Bandalagsins, sem eru aðgengileg á heimasíðunni. Minnt er á að auk stjórnarmanns getur hvert aðildarfélag tilnefnt fjóra fulltrúa til setu á aðalfundinum með atkvæðisrétt, þannig að hvert aðildarfélag fer með fimm atkvæði. Sambandsfélag getur að auki tilnefnt einn fulltrúa fyrir hvert sjálfstætt starfandi félag innan sambandsins. Allir félagsmenn hafa seturétt á aðalfundi og er hvatt til þess að aðildarfélögin augýsi og hvetji félagsmenn til að mæta.
Samkvæmt lögum BÍL skal á aðalfundi annað hvert ár kjósa forseta og skoðunarmenn reikninga. Framboð/tillögur til þessara embætta þurfa að hafa borist stjórn eigi síðar en viku fyrir boðaðan aðalfund.