|
24. apríl 2010. Hugarflugsfundur Bandalags íslenskra listamanna, sem haldinn var í sal FÍH við Rauðagerði í dag, tókst vel. Yfir 100 listamenn úr aðildarfélögum BÍL sátu fundinn og skeggræddu um listina og samfélagið. Fundarmenn unnu á 11 borðum og fylgdu fyrirmælum stjórnanda fundarins; Lárusar Ýmis Óskarssonar. Í fundarlok lögðu fundarmenn á hverju borði fyrir sig fram stutta setningu sem ætlað var að lýsa vinnunni á viðkomandi borði. Hér fer á eftir nokkurs konar „þykkni“ úr umræðunni: Samstöðu listgreinanna þarf til að auka þekkingu á verðmæti listanna, til uppbyggingar og framþróunar á þroskuðu og skapandi samfélagi.
Listin leggur gríðarmikil verðmæti til samfélagsins, bæði efnisleg og menningarleg og felur í sér rannsókn og gagnrýnin viðhorf sem brýnt er að skili sér sem víðast, ekki síst í menntastarf á öllum stigum; listamenn eiga að bera höfuðið hátt.
Listin auðgar samfélagið: -andlega: virkjar drauma, hreyfir og kveikir í okkur -gagnrýni: notum fortíðina sem eldsneyti, nútímann til skilgreiningarviðmiða, svo framtíðin auðgist -menntun: listlæsi er forsenda sjálfstæðrar og frjálsrar hugsunar, við getum kennt hana.
Listin eykur umburðarlyndi og víðsýni í samfélaginu – heimspeki, rökræður, listsköpun og listrýni eru grundvallarþættir í menntakerfinu allt frá leikskólaaldri, aðstaða til listsköpunar er aðgengileg öllum og fjölmiðlar sinna sínu hlutverki með vandaðri umfjöllun um listir.
Samfélagið verður að sjá til þess að list þrífist til að þrífast sjálft./ Listamenn eru áðnamaðkar samfélagsins. Það sem þeir geta gert fyrir samfélagið er að láta það aldrei í friði – það sem samfélagið getur gert fyrir þá er að gera þeim það kleift og hindra þá ekki.
Listmenntun eflir gagnrýna hugsun. Listir spegla samfélagið, skapa tækifæri til umbóta og endurskoðunar gilda. Listir eru sjálfskoðun sem er forsenda fyrir þroska.
Hlutverk listanna: Gagnrýni og þjónusta. Listin getur bent á , gagnrýnt, huggað, glatt og refsað. Hún getur hjálpað sjúku samfélagi að ná bata, verið afvötnunar- og meðferðarstöð. Hlutverk listanna er að setja spurningarmerki við ráðandi orðræðu , valdastrúktúr og ríkjandi viðmið, setja í nýtt samhengi og jafnvel búa það til.
Hlutverk lista innan samfélagsins er að spegla og miðla gildum á gagnrýninn, gegnsæjan og fræðandi hátt – svo tryggja megi upplýsta ákvarðanatöku og listræna víðsýni í hvívetna.
Sögulegt tækifæri verði nýtt til að hið skapandi afl listanna verði lagt til grundvallar í endurskipulögðu skólakerfi Íslands á öllum stigum og að listamenn, jafnt sem einstaklingar og bandalag verði atkvæðameira hreyfiafl í nýjum samfélagssáttmála.
Listin er fyrir samfélagið og með því að tileinka sér vinnubrögð listanna/listamanna í gegnum menntun og uppeldi aukum við lífsgæði á öllum sviðum.
Listamenn eru nauðsynlegir samfélaginu vegna næmni og gagnrýninnar sýnar. Þeir þurfa að eiga þátt í ákvarðanatöku þess. Listin er spegill á samfélag og hamar til aðgerða. Aðgengi að listum er mannréttindi. |